Ódýr

Ódýr

Hatari

Árin renna frá þér eins og brauðmylsnum er hent í ruslatunnu

Þau safnast saman á haugum brostinna drauma

Þú lítur til baka og hugsar:

Af hverju seldi ég mig—

Af hverju seldi ég mig—

ekki fyrir meira?

Næturnar verða ekki mikið fleiri eftir þetta

Ævi þín er útbrunninn stubbur í hringiðandi öskubakka

Þú lítur til baka og hugsar:

Af hverju seldi ég mig—

Af hverju seldi ég mig—

Öskunni er stráð yfir kistuna og um leið man enginn hver þú varst

Ekkert fyrirfinnst jafn ómerkilegt og ævin sem var við að ljúka

Þú stóðst ekki fastar á þínu en svo an enginn kærir sig um minningu þína

Við tekur hyldýpi svartnættis og eilíf eymd í botnlausri algleymsku

[Screaming]

Ég fel mig undir laki

sem kuldinn hefur þakið

Nóttin starir þögul

Hún segir lygasögur

Tómið svífur að mér

Berleggjaður berst ég

Banasæng ég bý mér

Banasæng ég bý mér

Árin runnu frá þér eins og brauðmylsnum var stráð í ruslatunnu

Þau söfnuðust saman á haugum brostinna drauma

Hversu oft var það sem þú leist til baka og hugsaðir:

Af hverju seldi ég mig—

Af hverju seldi ég mig—

ekki fyrir meira?

Ódýr

Ódýr

Hatari

00:00 / 00:00